Vinna að heiman fyrir alþjóðleg fyrirtæki

Viltu vinna
að heiman?

Hefurðu áhuga á að sinna þjónustu á íslensku fyrir alþjóðleg fyrirtæki? Skráðu áhuga þinn á framtíðarstörfum. Starfsfólkið vinnur að heiman, er ráðið beint hjá okkur og fær laun samkvæmt viðeigandi kjarasamningi.

Vinna að heiman

Þú vinnur með teyminu að heiman og þarft því ekki að fara daglega á skrifstofu.

Ráðning beint hjá okkur

Starfsfólk okkar er í ráðningarsambandi við Arctic Sea ehf., sem starfar undir heitinu Icelandic BPO ehf., en ekki í sjálfstæðri verktöku.

Kjör samkvæmt kjarasamningi

Við ráðningu er tilgreint hvaða kjarasamningur gildir og hver starfskjörin eru.

Skráning

Skráðu áhuga á framtíðarstarfi

Við þurfum aðeins nafn og netfang til að geta haft samband vegna framtíðarstarfa. Ekki senda ferilskrá að svo stöddu.

Með skráningu lýsirðu áhuga á framtíðarstarfi. Hún er hvorki starfsumsókn né tilboð eða loforð um starf. Þú getur eytt skráningunni með einkatenglinum sem birtist að skráningu lokinni.

Hvað gerist eftir skráningu?

01

Þú skráir áhuga þinn

Þú gefur upp nafn og netfang.

02

Við höfum samband

Ef starf sem gæti hentað þér býðst höfum við samband.

03

Við ræðum saman

Við ræðum starfið, reynslu þína og ráðningarkjör.